VALMYND ×

Félagsmiðstöðin Djúpið

Félagsmiðstöðin er staðsett í kjallara Sundlaugar Ísafjarðarbæjar.

Umsjónarmaður er Eva María Einarsdóttir evaei@isafjordur.is 

 

Opnunartímar Djúpsins eru:

Mánudagskvöld 19:30-22:00

Miðvikudagskvöld 19:30-22:00

Föstudagskvöld 19:30-22:30

 

Það eru strætóferðir fyrir unglingana sem fer rétt fyrir hálf 8 strætóleiðina og stoppar hjá Bíóinu og fer svo aftur strætóleiðina frá Bíóinu þegar félagsmiðstöðinni líkur á kvöldin.

Við erum einnig með facebook síður með upplýsingum og dagskrá hvers mánaðar hérna:

 

Fyrir foreldra : https://www.facebook.com/groups/320887351707890/ 

Fyrir nemendur: https://www.facebook.com/groups/1690476894501326/ 

 

Boðið er upp á klúbbastarf annan hvern föstudag.

D & D klúbburinn eða Dreka og dýflissu klúbburinn er gagnvirkt samstarfsævintýri, þar sem unglingarnir leika persónur sem hafa áhrif á framvindu sögunnar sem sögumaður segir frá. Markmið spilsins er að allir hafi gaman af, læri að setja sig í spor annarra, tjái sig og tilfinningar sínar, stuðla að samvinnu og efla félagsleg samskipti. Allir eru velkomnir og við hvetjum alla sem hafa áhuga á að prófa að mæta.

 

Ef það vakna einhverjar spurningar varðandi félagsmiðstöðina er hægt að senda tölvupóst á felagsmidstod@isafjordur.is eða evaei@isafjordur.is

 

Í nemendaráði veturinn 2022-2023 eru eftirtaldir nemendur:

10.bekkur: Lára Björg, Anna Salína og Agla Vigdís

9.bekkur:  Kristján Hrafn, Bríet Emma, Hrafnhildur Katrín, Soffía Rún, Stefán Eyjólfs, Rakel Eva og Sophia

8.bekkur: Axel Vilji