VALMYND ×

Kynningar frá ADHD samtökunum

Mánudaginn 28. apríl n.k. verður kynningarfundur ADHD samtakanna haldinn kl. 14.30  í sal Grunnskólans á Ísafirði,  í samvinnu við Velferðarráðuneytið. Fundurinn er ætlaður starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla, sérfræðingum í skóla- og félagsþjónustu og öllum þeim sem starfa með börnum, ungmennum eða fullorðnum með ADHD. Foreldrar eru einnig velkomnir.

Efni fundar: Hvað er ADHD og hvað gera ADHD samtökin? Elín Hoe Hinriksdóttir sérkennari og formaður stjórnar ADHD samtakanna og Björk Þórarinsdóttir gjaldkeri ADHD samtakanna kynna samtökin.

 

Dagskrá

  1. Hvað er ADHD? Birtingarmyndir, orsakir og afleiðingar.
  2. ADHD á mismunandi aldursskeiðum. Börn, unglingar, fullorðnir.
  3. Greining og meðferðarleiðir.
  4. Skóli, nám og teymisvinna.
  5. Sjónarhóll ráðgjafamiðstöð.
  6. Framtíðarhorfur.
  7. Hvað gera ADHD samtökin og fyrir hvern eru þau?
  8. Helstu verkefni samtakanna. Hlutverk, starfsemi, baráttumál, námskeið og fræðsla.
  9. Fyrirspurnir.

Klukkan 20:00 verður spjallfundur sem Björk og Elín stýra fyrir foreldra barna og ungmenna með ADHD. Ekki er um fyrirlestur að ræða. Foreldrar barna í leik-, grunn- og framhaldsskóla eru hvattir til að mæta.

Fundirnir eru öllum opnir og kosta ekkert. Nánari upplýsingar á skrifstofu ADHD samtakanna í síma 581-1110.

Deila